Salou-girls

Að sjálfsögðu!

26.03.2007 00:59:39 / Sigga_Eva

Hittingur í sumar...

Jæja stelpur í sambandi við þennan hitting í sumar, María hvaða helgi verður þú heima í sumar? Þurfum amk pottþétt að hittast í júní eða júlí af því ef Guðrún er að fara út í skóla og ég líka þá förum við í ágúst út... og það verður ekki um versló, hvað segiði um að hver og ein kommenti og segji hvenær hún geti komist, ég persónulega get ekki gefið upp e-a helgi fyrr en vinnan mín er komin á hreint... Held þetta velti svolítið á þinni helgi María hvenær þú kemst ef þú verður ekki á landinu...

Allavega endilega kommenta svo hægt sé að plana...

:haha: 


» 6 hafa sagt sína skoðun

28.12.2006 18:20:20 / Sigga_Eva

RÚST!!!

Já stelpur mínar þetta er sko RÚST!! Hver hefði trúað þessu!! og svo 2:0 núna :haha:

Já Hildur mín hleyptu nú rómantíkinni inní þig... bleikt hjarta lúkk og maður svífur um á bleiku skýi :)

Sigga Eva

» 4 hafa sagt sína skoðun

24.11.2006 11:07:36 / Sigga_Eva

Þetta auðvitað bara gegngur ekki!!

Jæja snúllurnar mínar.. þetta bloggleysi gengur nú ekki lengur þannig ég ákvað að henda inn nokkrum línum og sjá viðbrögðin ;)  Það er voðalega lítið að frétta þannig... nema maður situr heima og lærir að mestu og fer svo í Boot Camp þess á milli! Var einmitt að koma úr tíma áðan! Góður tími það, munaði engu að ég hefði ælt... jesús minn hvað þetta var erfitt ;)
En já svo hittir maður ekki marga, fyrir utan hjúkkustrákinn minn ;) kostur að eiga svona kærasta sem er að læra það sama og ég þá hefur maður nóg af tíma fyrir hann 8)

En jæja ég er að fara að skella mér í sturtu og svo í skólann, endilega fariði nú að blogga stelpur mínar!!
Kossar og knús
Sigga Eva

» 2 hafa sagt sína skoðun

15.08.2006 03:36:16 / Rasmus

dööö...

er þetta ekki bara algjörlega dauðadæmt blogg??

maður spyr sig..

allavana mánuður í að ég mæti á klakann... vona að þið hafið náð að hittast allar í sumar og skemmta ykkur geggjað vel (og auðvitað fyrir mig líka) :lol: ég vill sögur og slúður :haha:

Annars bara Marían mín.. Innilega til hamingu með afmælið á laugardaginn.. vona að þú hafir fengið smsið frá mér.. Og Guðrún mín.. Innilega til hamingju með afmælið á lagardaginn næsta.. By the way.. Allgjör snilld hjá ykkur að hafa afmælisdaga með svona viku millibili.. :haha: mæli með því ;)

Jebbs.. annars ætlaði ég bara svona að gefa þessu bloggi okkar lokatilraun.. það á það nú skilið greyið ;)

bleble


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.06.2006 19:22:16 / María

Mússí mússí mússí!!

Hæ elsku rúsínubollurnar mínar!
Ég var að enda við að skrifa á bloggið mitt, englarass, og það passar eiginlega íka hingað inn svoleiðis að þið kíkið bara þangað, er þaggi? Þetta er ofsa krúttíleg færsla, alveg satt:D
Ok, verð að drífa mig, sí jú leitör allígeitör!

Elska ykkur stelpur mínar, bless í bili, María:) **********

» 0 hafa sagt sína skoðun

10.06.2006 18:57:25 / Sigga_Eva

Er ekki gaman að vera til :)

Hæ elskurnar mínar... agalega er e-ð dauft yfir þessari síðu hérna, en það eru nú vissir aðilar sem halda henni uppi... takk elskurnar ;)

 Ég var að koma af fótboltaleik hérna á Djúpavogi þar sem Hamrarnir frá Akureyri tóku Neista í r...... og þar sem ég er á smá mótþróaskeiði gagnvart þessum bæ mínum þá hélt ég auðvitað meðHömrunum og fagnaði ákaft þegar loka tölur voru ljósar, 4-1 hehe ekki er Neisti að gera góða hluti!! Sá svo aðeins frama í Gunna, Arnór, Helga ofl áður en þeir stigu uppí rútuna, það var nú ekki knúsað þá mikið sökum þess hvað þeir voru blautir og sexy :)

En nóg um það, ég er á leiðinni á höfuðborgarsvæðið á morgun og svo eru það inntökuprófin á miðvikudag og fimmtudag... verð að læra eins og geðsjúklingur meira og minna fram að prófum þannig því miður get ég ekki hitt alla sem mig langar til að hitta!! þannig enginn má vera sár ef ég hringi ekki... fer svo heim á annaðhvort fimmtudag eftir próf eða á föstudaginn.... þarf samt aðeins að fá að sjá framan í þig Hildur mín þótt ég geti ekki lofað að það verði langt hæ!!

Annars er bara brjálað að gera í vinnunni!! og er búin að vera að vinna frekar mikla yfirvinnu, og þegar ég er ekki að vinna þá hef ég bara verið hérna heima að læra... get ekki beðið að klára þessi próf svo maður geti nú farið að njóta sumarsins :)

Látiði heyra í ykkur elskurnar mínar og haldið áfram að blogga!!!

Og btw þá get ég ekki beðið eftir að komast í bæinn næsta haust!!!

Ykkar

Sigga Eva


» 1 hafa sagt sína skoðun

29.05.2006 21:14:29 / Rasmus

frídagur í dag!! :o)

í dag er frídagur í usa þar sem það er memorial day...það er kannski ekki frásögu færandi..

EN það er búin að vera tæplega 30 °c hiti og sól og blíða í allan dag :haha::haha::haha:

langaði bara að deila þessu með ykkur ;) híhí


» 2 hafa sagt sína skoðun

16.05.2006 01:00:12 / Rasmus

Stannslaust stuð að eilífu...

jebbs... hvað er að frétta af klakanum??

Guðrún mín innilega til hamingju með að vera búin í prófinum, vona að þér hafi gengið vel og áttar því á því hvort þú viljir halda áfram í skólanum... :)

Hildur mín.. sorry að ég hef ekki heyrt í þér.. sá hérna á blogginu okkar að þú ert að fara út með þórsídi og Tinnu.. allveg frábært fyrir þig :D langar samt að fara að heyra í þér þegar þú ert búin í prófunum, já og ertu búin?? allavana þá til hamingju með það annars gangi þér vel...

María og Sigga mín.. þetta gegnur ekki.. verð að fara að heyra í ykkur, hef eigilega ekkert heyrt eftir að þið komuð heim á klakan..

Glingló?? þú ert lélegur bloggari elskan, farðu nú að láta í þér heyra...

Ég er bara hress.. Hildur Hrönn vinkona var hjá mér um helgina, allveg rosalega gaman.. er alltaf svolítið sorgmædd þegar fólkið sem kemur til mín í heimsókn er að fara en það líður hjá á nokkurum klukkutímum.. ;) Er ekki að byrja fyrr en um hádeig á morgun svo ég og salka erum að hugsa að kíkja á pöbbarölt :D það er alltaf hægt að djamma í new york alla daga vikunar :lol:

Annars bara hafið það gott dúllurnar mínar..

PARTÝ þegar minns kemur heim :lol::lol::lol:

rasmus

p.s. pælið það eru 239 dagar síðan ég kom út... Scheiße Tíminn líður hratt.. :$


» 2 hafa sagt sína skoðun

11.05.2006 09:10:17 / Krulla

VISS MÍ LÖKK

... seinasta prófið í dag og ég stend á vegamótum... ég er allveg á báðum áttum hvort að ég eigi hreinlega að halda áfram í þessu námi. Finnst ömurlegt að vera búin með 2 ár með buxurnar á hælunum og fá skíta einkunnir í einhverju sem mér finnst í raun mjög skemmtilegt... og langar allveg að starfa við í framtíðinni.

Í október er ég komin með skólaleiða og finnst þetta ekkert skemmtilegt og drulla svo á mig í prófunum. Sama gerist á vorönn... nema þá er ég komin með skólaleiða í febrúar og er allveg að æla úr leiðindum í próftíðinni. Mig langar allveg að starfa við þetta í framtíðinni en mig langar ekki að útskrifast með þessar plebba einkunnir...

hvað ég ég að gera stelpur?

ykkar Krulla

p.s. próflokadjamm á morgun og svo aftur þegar ég er búin með upptökuprófin... María djónaru mér ekki á djammið á morgun?


» 3 hafa sagt sína skoðun

07.05.2006 21:51:24 / Krulla

próftíð

Hver kannast ekki við það að nenna EKKI að læra í próftíð? ég er núna allveg að skíta upp á bak í þessum prófum af því að ég nenni einfaldlega ekki að læra... :S

En svona er þetta og svona verður þetta .. vona bara að ég nái að redda þessum prófum..

Hvað er að frétta af ykkur .? eruð þið allar búnar á ákveða hvað þið ætlið að gera pott þétt næsta ár?

vonum svo að þið svarið..


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.04.2006 22:59:23 / Krulla

Litla skrifar

Jæja sælar stúlkur mína...úfff ég gæti örugglega skrifað hér alveg heil langa ræðu en best að hlífa ykkur við því..allavegna núna ;)

Humm hvað er að frétta úr Reykjavík city hummm í augnablikinu ekki margt þar sem það er bullandi prófatíð sem er alltaf afskaplega óspennandi tími að mér finnst....í vetur hefur nefnilega ekki mikið verið lært aðallega unnið..þar sem minns ákvað að vinna 3 vinnur með skólanum æi ég meina læra piff ég er svo gáfuð þarf þess ekki hehehe NOT..8)

Já einmeitt sumarið mun síðan einkennast af meiri vinnu og lítið um skóla sem betur fer en nóg af vinnu....vona samt að við náum að hittast þrátt fyrir mikla dagskrá..ef það eru ekki fótbolta mót þá er það vinna....Síðan er það draumurinn þegar ég næ á henni Ingu minni sem ég fer nú bara bráðlega að fjárfesta í símkorti og hringja í þessa elsku..er draumurinn að fara aftur út til hennar í ágúst-sept...bara snilld...stelpur New York er málið...en sumarið mun einnig einkennast af einmanna leika þar sem fólk ætlar að flykkjast á norðurhluta þessara vesældar eyjar eyða sumardögunum þar og síðan flykkist það til borgarinnar þegar dimmar fer og kúrir hér í kuldanum í borg óttans.......

svo er það auðitað skipulagning á einu svaðalegasta heimkomu partý aldarinnar þegar Inga kemur heim..Akureyri verður lögð undir í heilu lagi og ekkert minna sem dugir..þarf sko að fara að skipuleggja þetta skvísurnar mínar

Glóa  nú er komið að því að þú látir ljós þitt skína þar sem þú hefur ekki tjáð þig mikið....koma svo Glóa..koma svo

risa knús og þvílíkur söknuður héðan úr  borg óttans........

Litla


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.04.2006 20:32:22 / Sigga_Eva

Djööv lýst mér vel á þetta skvísur!!!

Hæ elskurnar, tek nú undir þetta með þér Guðrún mín að maður verður að fagna góða veðrinu, 17 stiga hiti heitast í dag!! og 14 gráður núna! þetta er auðvitað bara geggjað!!

En það sem mér lýst svona vel á er að mér sýnist þið allar (nema Inga mín :cry: ) vera að fara að koma á Djúpavog í sumar! og ef þið látið verða úr þessu þá lofa ég ykkur ekkert smá miklu stuði!!! :)

Sigga Eva

» 1 hafa sagt sína skoðun

28.04.2006 11:59:52 / Krulla

sumarið er komið

á Akureyri það er bloddí 15°c úti og ég inni á læra ... !

En það er geggjað veður og á maður ekki að fagna því?

Krullan


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.04.2006 19:02:58 / María

Sælar stúlkur!

Jæja elsku rúsínurnar mínar! Það veitir nú ekki af að fara að tjá sig hérna, einhvers staðar þarf maður að gera það og þar sem ég er meðlimur í a.m.k. 4 bloggsíðum þá er best að byrja ...hér!;) Er samt búin að byrja á minni en þið fattið, ehe...;)

Sko, ég er svo miklu meira en til í hitting í sumar að ég er búin að lofa henni frú Sigríði að ég muni ræna ykkur hinum, öllum, og skunda með ykkur á Djúpavog þar sem verður slegið upp í heljarinnar kynsvall. Eða bara smá partý, það kemur bara allt í ljós, skiljiði;) En mér finnst ekki ganga annað en að við hittumst að minnsta kosti, já, a-ð m-i-n-n-s-t-a k-o-s-t-i, einu sinni í sumar og svo barasta aftur þegar Inga kemur;)

En Sigga Eva mín, jú, ég veit sko hversu erfitt það er að venjast íslenska lyklaborðinu aftur, er ennþá í því að skrifa d í staðinn fyrir ð, ae í stað æ, og þar fram eftir götunum. Þetta kemur með tíð og tíma, rétt eins og að venja sig af því að henda klósettpappírnum ofan í ruslið. Ekki misskilja, ég ger það ekki en það eru alltaf þessi nokkur andartök sem ég þarf virkilega að hugsa mig um hvort sé nú rétt að gera. Sem betur fer er ég ekki neitt voða fljót að gleyma íslensku siðunum...

En það er nú eitt sem mér finnst ömurlegt núna. Í dag fékk ég kvef! Aaarrgghh! Maður er búin að ferðast um Andesfjöllin og fleira þvíumlíkt án flestra kvaða, allt svona lala, og svo kemur maður heim og er búin að vera hérna í mánuð og þá er bara skellt á mann kvefi! Ég spyr ekki að... Ég mótmæli öll!:) En þetta verður líklega farið á morgun, virðist bara vera stífluð í einni nös og er í rauninni bara slæm öðrum megin í líkamanum. Kannski er þetta vinstri veikin!Ohh, hjálpi hver sér sem hjálpað getur... Eða eitthvað. Vá, hvað það er gaman að bulla svona, þetta eruð nú einu sinni bara við vinkonurnar sem lesum þetta (aha, ég ímynda mér það...).

En að öðru sem ég gleymdi að minnast á hérna áðan. Ég sé fram á hálfpartinn kærastalaust sumar (og þar af leiðandi vinkonufullt! Vúhú!) vegna þess að elsku gæludýrið mitt er að gerast sumarlögga á ...trommusláttur... Húsavík! Ohh, ég veit.... Ekki minnast á þetta ógrátandi. Húsavík. Hnuss...

Ohh, ég er orðin uppgefin af bulli, pælum aðeins í því, hmmm....... Aaaaaa... Tjah, ef engin annar fattar mig þá veit ég að hún Sigga Eva veit hvað ég er að rugla, pældum mikið svona þarna úti, híhíhí;) Ok, dúllurnar mínar, segjum þetta gott í bili, sakna ykkar allra, hvar svo sem þið eruð staddar. Hasta luego og það verður ekki tekið til umræðu að ein eða nein fari í bloggverkfall, þessari síðu verður haldið lifandi undir Salou nafninu þangað til við förum til Krítar! Og þá verðu nafninu bara breytt, múhahaha;) Jæja, adiós amigas guapas;) *knús og kossar*


» 5 hafa sagt sína skoðun

14.04.2006 21:12:18 / Krulla

Páskarnir eru yndislegir

Ég er semsagt búin að vera á Ólafsfirði síðan á mánudaginn og kom með með mér Hólmar minn, Tyson okkar og Spóann minn (einn af hestunum mínum). Þannig að minn tími er búin að fara í allt annað en að læra ... en það er allt í lagi ég læri bara eftir páska er það ekki stelpur?

Sigga ég er ánægð með þig, fékkst launahækkun og alles. Ég hlakka líka geggjað til að fá þig í heimsókn;)

Þið hinar ég vil fara að sjá komment eða blogg frá ykkur .. mér þætti vænt um að fá að vita hvað er að gerast hjá ykkur :)

Eitt nú vil ég fá á kommentum hvort að þið hafið áhuga á því að hittast í sumar eða eigum við bara að reyna að hittast í haust þegar Inga verður komin til landsins???? Koma svo stelpur!!

Þar sem ég er eiginlega grafinn ofan í sjónvarpið þá hef ég þetta ekki lengra í bili:)


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4